5 dagar: Draupnir - KA

Á morgun,  mánudaginn 9. maí,  kl. 19.00 fara okkar menn í KA í heimsókn til Draupnis í Boganum. Deila má svo sem um hver er að fara í heimsókn til hvers en leikurinn er allavega heimaleikur Draupnis.

Leikurinn er í 2. umferð Valitor- bikarsins og mætast liðin annað árið í röð í þessari umferð. Í fyrra sigraði KA 2-0 en Draupnismenn veittu þeim harða keppni og má vænta þess sama á morgun, enda hafa þeir litlu að tapa.

Við hvetjum alla KA-menn til að fjölmenna á leikinn því þetta gæti orðið ágætis skemmtun.