Á morgun: Leiknir - KA (upphitun)

Eftir stífar æfingar og mikla vinnu verður Íslandsmótinu í 1. deildinni loksins sparkað af stað á nýjan leik á morgun, athöfnin sem við KA-menn viljum fylgjast með fer fram á Leiknisvelli í Breiðholtinu. 

Miklar breytingar eru á liði KA frá því í fyrra og ef við skoðum byrjunarliðið í síðasta leik á síðasta tímabili og líklegt byrjunarlið á morgun má sjá  að það eru u.þ.b. 7 breytingar á byrjunarliðinu. Að mínu mati eru þessar 7 breytingar jákvæðar og að mínu mati er liðið betra og efnilegara núna, en hvað finnst ykkur?


Fyrir tæpu ári síðan byrjaði KA deildina einnig á útivelli, gegn Andrési Vilhjálmssyni og félögum í Þrótti, sá leikur vannst 2-1 með mörkum frá Hauki Hinriks og sjálfsmarki Þróttar.

Leiknir byrjaði einnig á heimavelli á síðustu leiktíð og sigraði Njarðvík 2-0 en síðasta tímabil var hálfgert öskubuskuævintrýri hjá Leiknismönnum og klúðruðu þeir á lokasprettinum að koma sér upp í úrvalsdeild.

KA

Eftirfarandi hafði Garðar Gunnar Ásgeirsson sérfræðingur fótbolti.net að segja um liðið í árlegri spá:

“KA hefur orðið fyrir töluverðri blóðtöku síðan síðasta sumar. Þeir hafa misst bæði David Disztl og Janes Vrenko og svo hefur Túfa, Srjdan Tufegdzic, ekkert spilað með þeim í allan vetur. Í staðinn hafa þeir fengið efnilega stráka lánaða frá liðum í Pepsi-deildinni.”

Að mínu mati má deila um blóðtökuna af völdum brottfarar Disztl því ég persónulega tel Dan Howell sterkari leikmann sem skilar meiru til liðsins.

Garðar Gunnar heldur síðan áfram í umfjöllun sinni á fotbolti.net:

"Styrkleikar: Það er alltaf erfitt fyrir önnur lið að fara norður að spila. Þetta eru ferðalög og ég tel að Akureyrarvöllur sé einn af þeirra styrkleikum. Markvörðurinn Sandor Matus hefur verið í hópi bestu markvarða landsins. Hann átti reyndar ekki gott tímabil í fyrra en ég held að hann verði einn af lykilmönnum liðsins í sumar. Haukur Heiðar Hauksson hægri bakvörður hefur verið sterkur hjá þeim síðustu ár og er lykilmaður þrátt fyrir ungan aldur.

Veikleikar: Hafa misst lykilmenn ásamt því að það er kominn nýr þjálfari. Það tekur alltaf tíma fyrir nýjan þjálfara að koma sér inn í hlutina og einnig fyrir aðra leikmenn að taka við keflinu af þeim sem eru farnir. Framherjinn spræki Ágúst Örn Arnarson sem þeir fengu lánaðan frá Breiðabliki verður ekki með þar sem hann sleit krossbönd. Ég tel að það sé mikill missir fyrir þá, hann hefði getað orðið drjúgur fyrir þá í sumar.

Lykilmenn: Sandor Matus, Haukur Heiðar Hauksson og Guðmundur Óli Steingrímsson. 

Gaman að fylgjast með: Hallgrímur Mar Steingrímsson, eldsnöggur og flinkur kantmaður frá Húsavík. Steinn Gunnarsson er líka strákur sem vert er að fylgjast með."

 


Leiknir 

Leiknismönnum er spáð 3. sæti í deildinni í ár sem er sama sæti og þeir enduðu í í fyrra og þetta hafði Garðar Gunnar að segja um þá:

"Eftir Öskubuskuævintýri í fyrra klúðraði Leiknir því í lokaumferð að komast upp. Það verður mjög erfitt fyrir Leiknisliðið að gera svipaða hluti í ár og í fyrra.

Styrkleikar:Liðið er í hörkuformi og er mjög vel skipulagt. Yfirleitt er hægt að treysta því að leikmenn Leiknis leggi sig vel fram. Í liðinu eru margir leikmenn sem hafa sýnt það á síðasta tímabili og í vetur hversu góðir fótboltamenn þeir eru.

Veikleikar: Nú í ár búast alir við góðu gengi og það getur reynst mörgum erfitt að axla þá ábyrgð. Það má ekki mikið út af bregða í leikmannahópnum svo vélin gangi ekki vel. Ef ákveðnir lykilmenn detta út úr liðinu þá getur Leiknir lent í basli.

Lykilmenn:Vigfús Arnar Jósepsson, Fannar Þór Arnarsson og Kristján Páll Jónsson.

Gaman að fylgjast með: Hilmar Árni Halldórsson. Efnilegur miðjumaður sem getur gert frábæra hluti á góðum degi."

 


Frá örófi alda hafa liðin mæst 11 sinnum, KA menn unnið 4, Leiknir 5 og tvisvar hafa liðin skilið jöfn.

Stærsti sigur KA á Leikni kom í júní 2008 þegar KA vann 6-0 en þá skoruðu Almarr Ormarsson og Dean Martin tvo mörk hvor og Andri Fannar og Guðmundur Óli sitt markið hvor.

Stærsti sigur Leiknis á KA er 4-0 og kom hann í júlí 2007 en förum ekki nánar út í þá sálma.

Leikurinn hefst klukkan 20:00 á morgun á Leiknisvelli eins og fyrr segir, það má búast við hörkuleik enda tvö hörkulið sem ætla sér að vera með í baráttunni í sumar. 

ALLIR KA-MENN SEM TÖK HAFA Á ERU HVATTIR TIL AÐ MÆTA, LIÐIÐ ÞARF STUÐNING OG ÞAÐ ER Í OKKAR HÖNDUM AÐ VEITA ÞANN STUÐNING!! ÁFRAM KA!!

Endilega kommentið og segið ykkar skoðun á muninum á liðunum og þessum leik!