Aci semur við KA

Aksentije Milisic að lokinni undirskrift á tveggja ára samningi við KA - ásamt föður sínum, Slobodan…
Aksentije Milisic að lokinni undirskrift á tveggja ára samningi við KA - ásamt föður sínum, Slobodan Milisic.
Knattspyrnudeild KA hefur gert tveggja ára samning við Aksentije Milisic (Aci), leikmann í öðrum flokki KA. Aci er fæddur 1993 og hefur spilað upp alla yngri flokka KA, auk þess sem hann hefur komið að þjálfun. Hann er nú á yngra ári í öðrum flokki, en þann flokk þjálfar einmitt Slobodan Milisic, faðir hans.