Aðalfundur knattspyrnudeildar KA var haldinn 6. febrúar síðastliðinn

Fínasta mæting var á fundinn. Litlar breytingar urðu á stjórn knattspyrnudeildar en Róbert Már Kristinsson lét af störfum og sendir knattspyrnudeild honum bestu þakkir fyrir vel unnin störf síðustu ár.

Hjörvar Maronsson formaður fór yfir árið sem var viðburðarríkt en félagið tók þátt í Evrópukeppni bæði í meistaraflokki og í u19 keppninni í ár.

Sævar Pétursson framkvæmdastjóri fór yfir ársreikning félagsins en helstu tölur úr honum eru eftifarandi:

  • Rekstrartekjur félagsins á árinu 2025 námu kr. 460,0 millj. samanborið við kr. 359,4 millj. kr. árið 2024.
  • Tap ársins nam kr. 11,3 millj. í samanburði við kr. 16,5 millj. tap árið 2024.
  • Heildareignir námu í árslok kr. 95,0 millj. og eigið fé var kr. 62,8 millj.
  • Greiðslur til umboðsmanna námu 4.593.800 kr árið 2025


Nánari upplýsingar má finna í ársreikning félagsins sem er hér.