Knattspyrnudeild KA barst í dag öflugur liðsstyrkur en Adam Ægir Pálsson skrifaði í dag undir hjá félaginu. Adam Ægir sem er 28 ára gamall gengur í raðir KA frá Val.
Adam Ægir sem getur bæði leikið sem sóknarmaður og kantmaður vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína með Keflavík sem varð til þess að Víkingur keypti hann til sín. Þaðan gekk hann í raðir Vals fyrir sumarið 2023. Á meðan dvöl hans hjá Val stóð var hann lánaður til ítölsku liðanna Perugia og Novara.
Það eru afar jákvæðar fréttir að þessi öflugi kappi sé nú genginn í raðir okkar KA-manna og ljóst að hann mun styrkja hópinn enn frekar fyrir komandi baráttu í seinni hluta Bestudeildarinnar. Við bjóðum Adam Ægi hjartanlega velkominn norður í gult og blátt!