Þetta var fyrsti leikur Þórs/KA undir stjórn nýs þjálfara, Hlyns Eiríkssonar, og er óhætt að segja að hann hafi byrjað
vel með liðið. Rakel Hönnudóttir skoraði fyrsta mark norðanstúlkna strax á 13. mínútu og bandaríska stúlkan Manya Janine
Makoski bætti við öðru marki rétt áður en flautað var til hálfleiks.
Markamaskínan Anna Björk Björnsdóttir minnkaði muninn fyrir Fylki strax í upphafi síðari hálfleiks, en Þór/KA stúlkur héldu út og Arna Sif Ásgrímsdóttir innsiglaði öruggan sigur með þriðja markinu á 62. mínútu.
Eftir þennan sigur er Þór/KA í fjórða sæti deildarinnar með sex stig, þremur stigum á eftir toppliði ÍBV sem er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og markatöluna 12-0.