KA og Þór verða með knattspyrnuæfingar fyrir börn með sérþarfir á aldrinum 6-16 ára og hefjast æfingarnar miðvikudaginn 3. júní næstkomandi. Æft verður í Boganum en æfingarnar fara fram kl. 16:15 til 17:00 á miðvikudögum í sumar.
Æfingarnar eru hluti af verkefninu Allir með! og eru hugsaðar fyrir börn sem til dæmis þurfa meiri stuðning, hentar betur að vera í minni hópum og hafa aðgang að fleiri þjálfurum á æfingu. Allir geta tekið þátt á sínum forsendum. Æfingarnar eru byggðar upp sem stöðvar á öðrum helmingi vallarins og skipulögðum æfingum á hinum helmingnum.
Allir velkomnir að mæta og prófa - skráning á Abler eða á staðnum. Æfingargjald er 10.000 kr. Hlökkum til að sjá ykkur
Frekari upplýsingar um æfingarnar og verkefnið veita:
Kristján - kristjan@ka.is
Linda - linda@thorsport.is