Andrés ásamt Gunnlaugi þjálfara. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.
Sóknarmaðurinn Andrés Vilhjálmsson er genginn til liðs við KA frá Þrótti Reykjavík og mun verða hjá KA næstu tvö
árin í það minnsta.
Andrés á að baki 92 leiki í meistaraflokk og í þeim hefur hann skorað 16 mörk. Flesta af leikjunum lék hann með Þrótti,
þ.á.m. 20 leiki í Pepsideildinni sumarið 2009.
Andrés er 27 ára og hefur leikið flestar stöður framarlega á vellinum. Hann er uppalinn hjá KA en fór á Skagann árið 2003 og
þaðan fór hann til Þróttar þar sem hann hefur verið síðan.