Á laugardaginn lék annar flokkur sinn fyrsta æfingaleik í vetur en nokkrum dögum áður hafði Örlygur Þór verið ráðinn
þjálfari flokksins.
Andstæðingurinn að þessu sinni var meistaraflokkur Völsungs en leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli en í lið KA-manna vantaði m.a. bakvörðinn
Hauk Heiðar Hauksson og framherjann Orra Gústafsson.
KA-menn komust yfir í fyrri hálfleik með marki frá Andra Fannari áður en að Völsungar náðu að jafna metin í lokin með marki
úr vítaspyrnu.
Steinþór
Sveinbjörn - Sigurjón - Haukur - Arnar L.
Davíð R.
Hallgrímur - Andri F. - Árni A. - Jakob
Eiður
Skiptingar: Garðar Stefán inn fyrir Eið, Óskar Þór inn fyrir Sveinbjörn.
Annar flokkur mun hefja æfingar á morgun, miðvikudag, í Boganum kl. 20:45.