Arnór Egill framlengir samning

Arnór Egill og Óskar Þór, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA.
Arnór Egill og Óskar Þór, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA.
Arnór Egill Hallsson skrifaði í dag undir nýjan samning við KA, en hann hefur verið meira og minna í herbúðum KA síðan 2005.

Arnór Egill, sem er framherji, er uppalinn KA-maður og heufr bróðurpart síns ferils spilað með félaginu. Um tíma spilaði hann þó með Fjarðabyggð og einnig Magna á Grenivík. Arnór Egill verður í eldlínunni með KA-mönnum í sumar og verður í leikmanahópi KA sem mætir Draupni í Valitor-bikarnum í Boganum í kvöld.