Arsenalskólinn aftur á KA-svæðinu 2011

Yngriflokkaráð knattspyrnudeildar var rétt í þessu að tryggja að Arsenalskólinn verði aftur á Akureyri í júní 2011. Miklar gleðifréttir þar sem skólinn þótti einstaklega vel heppnaður í fyrra.

Mikil eftirspurn var í skólann í fyrra og má reikna með því að það verði svipað í ár. Skólinn verður með sama sniði og í fyrra, hann er bæði fyrir stráka og stelpur í 5.-3. flokk.

Skólinn stendur yfir í eina viku frá 13. júní til 17. júní og er frá 10-15 alla þessa daga. Milli kl. 12-13 fá krakkarnir heita máltíð.

Hér að neðan má sjá myndband sem Haraldur Logi Hringsson gerði á meðan síðasti Arsenalskóli var í gangi.