Ásgeir Sigurgeirsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027. Þetta eru stórkostlegar fréttir enda Geiri algjör lykilmaður í okkar liði og stórkostlegur karakter sem hefur átt mikinn þátt í uppgangi KA-liðsins undanfarin ár.
Ásgeir sem er 28 ára gamall kom á láni til KA fyrir sumarið 2016 frá norska liðinu Stabæk og sló heldur betur í gegn er KA tryggði sér loksins sæti í efstu deild með sannfærandi sigri í Inkasso deildinni. Ásgeir skoraði 8 mörk það sumarið og þar á meðal sigurmarkið gegn Selfyssingum sem tryggði úrvalsdeildarsætið.
Í kjölfarið gekk Ásgeir endanlega til liðs við KA og hefur verið burðarás í liðinu síðan. Hann er nú einn leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins en hann hefur leikið alls 215 leiki fyrir KA í deild, bikar og evrópu og gert í þeim alls 55 mörk.
Í sumar hefur hann tekið þátt í öllum tíu leikjum liðsins í Bestudeildinni auk leiksins í Meistarakeppni KSÍ og gert í þeim leikjum fimm mörk. Á sínum yngri árum lék Geiri 18 landsleiki fyrir yngrilandslið Íslands og gerði fjögur mörk.
Ekki nóg með að vera gríðarlega öflugur leikmaður sem gefur sig ávallt allan í verkefnið að þá er Ásgeir mikill leiðtogi sem drífur liðsfélaga sína áfram. Það er því ákaflega sterkt að hann sé búinn að framlengja samning sinn og að við munum áfram njóta krafta hans næstu árin.