Bandaríkjamaðurinn Dan Howell, sem verið hefur á reynslu hjá KA síðustu vikur, gerði í dag samning við félagið sem gildir út komandi keppnistímabil.
Dan Howell, sem er framherji, hefur undanfarnar vikur æft með KA og komið inn á í tveimur leikjum liðsins í Lengjubikarnum - í útileikjunum
við Selfoss og Keflavík. Þá setti hann tvö mörk í æfingaleik við Dalvík á dögunum.
Að lokinni undirskrift samnings í dag sagðist Dan vera mjög ánægður með þetta skref. Honum litist afar vel á allar aðstæður hjá KA og sér hafi verið einstaklega vel tekið. Dan mun taka þátt í nágrannaslagnum við Þór annað kvöld kl. 21.15 í Boganum, en hann mun síðan um næstu helgi fara vestur um haf, en er væntanlegur aftur til Akureyrar þegar líður á apríl og verður tilbúinn í slaginn í 1. deildinni í maí.
"Ég er hæstánægður með að hafa fengið Dan í okkar raðir. Hann hefur sýnt fína takta á æfingum hjá okkur og ég er þess fullviss að hann á eftir að nýtast okkur vel í sumar," segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari.