Dan Howell: Til þessa hefur þetta verið frábær reynsla

Howell í baráttunni með Gróttu í fyrra
Howell í baráttunni með Gróttu í fyrra

í aðdraganda stórleiksins á fimmtudaginn hafði síðan samband við Daniel Howell og spurði hann útí byrjunina og leikinn gegn Þór


Howell er leikmaður sem KA er með á reynslu, Gunnlaugur er virkilega ánægður með stráksa en hvernig lýst honum á aðstæður? “Ég er mjög ánægður með allt hérna hjá KA. Allir strákarnir hafa tekið mér vel, þjálfararnir hafa verið að hjálpa mér að komast aftur í form og stjórnin hefur séð um mig. Til þessa hefur þetta verið frábær reynsla“

Reynslusamningur Howell rennur út innan skamms en hefur hann áhuga á langtíma samningi viið félagi? “Ég er mjög áhugasamur um að semja við liðið. Við erum með mikið af ungum og hæfileikaríkum strákum og getum valdið usla í sumar”

Eftir 4 leiki hefur Howell skorað tvö mörk og komu þau gegn Dalvík, en má vænta þess að fá fleiri frá framherjanum knáa? “Haha tvö heppnis mörk gegn Dalvík, en ég held að það sé meira að vænta, ég venst því að spila með strákunum og þeir venjast mér. Ég vona að mörkin eigi eftir að verða mikið fleiri í framtíðinni”

Hvernig líkar honum Akureyri? “Bærinn er frábær, allt er nálægt og þægilegt. Ég er frá smábæ þannig Akureyri er fullkominn bær fyrir mig”

Stórleikur á fimmtudaginn þegar KA mætir Þór í lengjubikarnum eru menn klárir í þann leik? “Þetta er virkilega stór leikur og ég held að strákarnir eru fókuseraðir og vonast til að byggja ofaná það sem við högum sýnt í síðustu tveim leikjum. Kannski ekki bestu úrslitin en við erum að bæta okkur sem lið, þegar við smellum saman þá verðum við virkilega góðir”