Davíð Örn er á sautjánda aldursári - fæddur 1994 - og er því á fyrsta ári í öðrum flokki. Hann þekkir vel til hjá KA, því hann var í yngri flokkum félagsins en flutti suður yfir heiðar þegar hann var í fimmta flokki. Davíð Örn var á reynslu hjá KA í dymbilvikunni og kom inn á þegar meistaraflokkur spilaði æfingaleiki við bæði KF og BÍ/Bolungarvík.
Davíð Örn hefur spilað 4 leiki með U-17 ára landsliði Íslands. Hann er boðinn velkominn á fornar slóðir.