Dean Martin, þjálfari meistaraflokks KA, óskaði í dag eftir því að láta af störfum sem þjálfari og leikmaður hjá KA. Samningur hans við félagið, sem var til þriggja ára, átti að renna út í lok október.
Dean Martin hefur í það heila spilað vel á þriðja hundrað leiki fyrir KA, en fyrst kom hann til félagsins sem leikmaður árið 1995 og spilaði þá til ársins 2003. Hann kom síðan aftur til félagsins sem þjálfari og leikmaður árið 2008.
Knattspyrnufélag Akureyrar þakkar Dean Martin fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins sem þjálfari og leikmaður. Alla tíð hefur hann sem bæði sem leikmaður og þjálfari meistaraflokks og sem yngriflokkaþjálfari hjá KA gefið sig allan í verkefnið og rúmlega það. Fyrir það vill KA þakka af heilum hug um leið og honum og fjölskyldu hans fylgja bestu óskir um farsæld í öllum þeim verkefnum sem bíða á öðrum vettvangi.
Stjórn knattspyrnudeildar KA.