Fyrir rúmri viku voru riðlarnir í deildarbikarnum gefnir út en núna er búið að birta drög að leikjaniðurröðun.
KA hefja mótið á heimaleik gegn úrvalsdeildarliði Breiðabliks í Boganum. Næst

kemur svo útileikur gegn Fjölni áður en
,,útileikur" á móti nágrönnum okkar í Þór fer fram. Þá er komið fram í apríl og
þá koma Valsarar í Bogann og mótið endar síðan á leik gegn Aftureldingu fyrir sunnan.
Með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan er hægt að sjá dagsetningar ásamt tímasetningum og leikvöllum í
riðli eitt.
Deildarbikarinn - A deild karla, riðill 1
Mynd: Breiðablik mætir í Bogann í
febrúar.