Efnilegir KA-menn í landsliðsúrtökum

Lára Einarsdóttir
Lára Einarsdóttir

Núna um helgina hafa Fannar Hafsteinsson, Ólafur Aron Pétursson og Stefán Hafsteinsson verið boðaðir á úrtaksæfingar. Helgina 23.-24. október fóru Ævar Ingi Jóhannesson og Lára Einarsdóttir einnig á úrtaksæfingar.

Stefán Hafsteinsson er 17 ára varnarmaður frá Blönduósi. Stefán lék með 2. fl í sumar en hann á að baki þrjá landsleiki fyrir U17 ára lið Íslendinga.

Lára Einarsdóttir er 15 ára miðjumaður. Lára lék 13 leiki fyrir mfl Þórs/KA í sumar, ásamt því að leika fyrir 2. fl Þórs/KA og 3. fl KA. Lára á að baki tvo landsleiki fyrir U17 ára lið Íslendinga og skoraði hún eitt mark í þeim.

Fannar Hafsteinsson er 15 ára markvörður sem lék með 3. fl í sumar.

Ólafur Aron Pétursson er 15 ára miðjumaður sem lék með 3. fl í sumar.

Ævar Ingi Jóhannesson er 15 ára miðjumaður sem lék með 3. fl í sumar.

Fannar, Aron og Ævar hafa ásamt liðsfélögum sínum náð mjög góðum árangri í gegnum tíðina á knattspyrnuvellinum. Ber þar helst að nefna silfur á Íslandsmóti í 5. flokki og 4. flokki.

Heimasíðan óskar þeim velfarnaðar á æfingunum.