Elmar Dan genginn í raðir KA: Sætti mig aldrei við að tapa leikjum

Elmar Dan og Gunnlaugur þjálfari að lokinni undirskrift samnings sem gildir til loka keppnistímabils…
Elmar Dan og Gunnlaugur þjálfari að lokinni undirskrift samnings sem gildir til loka keppnistímabilsins 2013.

Elmar Dan Sigþórsson gekk í dag í raðir KA-manna og verður löglegur með KA í leiknum mikilvæga á móti Leikni á Akureyrarvelli á morgun. Elmar Dan hefur undanfarin tvö ár búið í Noregi og spilað með tveimur þarlendum liðum, síðast með 2. deildar liðinu Förde. Elmar Dan hefur nú flutt heim til Akureyrar með fjölskyldunni og er albúinn að taka þátt í slagnum sem framundan er með KA.

Elmar Dan er gulur og blár í gegn. Hann æfði og spilaði með KA upp alla yngri flokkana og spilaði sína fyrstu leiki með meistaraflokki KA árið 2001 og spilaði með félaginu til 2004 þegar hann gekk í raðir Víkinga R og spilaði með þeim keppnistímabilið 2005. Spilaði síðan með Fjarðabyggð árið 2006. Elmar Dan gekk síðan aftur í raðir KA árið 2007 og lék með liðinu það ár og árið 2008. Fór síðan til Noregs árið 2009 og hefur sem fyrr segir spilað þar með tveimur liðum á undanförnum tveimur árum.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn heim til þess að taka þátt í slagnum með KA. Ég átti við meiðsl að stríða í vor, en er nú farinn að æfa á fullu á ný og er mjög spenntur að byrja aftur að spila á Akureyrarvelli. Ég hvet alla stuðningsmenn KA til að fjölmenna á völlinn á morgun og styðja við bakið á liðinu og ég trúi því og treysti að leikmenn liðsins leggi sig alla fram til þess að tryggja sigur á Leikni á morgun.  Ég vonast til að geta fært liðinu eitthvert nýtt blóð og aukinn kraft og komið með smá reynslu og sigurvilja inn á völlinn. Það er ekkert launungarmál að ég sætti mig aldrei við að tapa leikjum. Það eru margir harðir KA-menn á Akureyri, en ætli það sé nokkuð ofmælt að ég sé í hópi þeirra allra hörðustu,“ segir Elmar Dan Sigþórsson, sem í það heila á að baki 99 meistaraflokksleiki með KA. Komi hann við sögu í leiknum við Leikni verður hann því sá 100. hjá Elmari Dan fyrir KA.