Elvar Máni snýr aftur heim

Velkominn aftur heim!
Velkominn aftur heim!

Elvar Máni Guðmundsson er genginn aftur í raðir KA eftir þriggja ára veru í Garðabæ. Elvar Máni sem er uppalinn hjá KA er öflugur leikmaður sem getur bæði leikið sem sóknarmaður og kantmaður.

Elvar Máni sem er fæddur árið 2006 skrifaði undir fyrsta samning sinn við KA er hann varð 15 ára gamall og lék sama dag með meistaraflokksliði KA í 6-0 sigri á KF í Kjarnafæðismótinu.

Eins og áður segir hefur hann leikið undanfarin þrjú ár í Garðabænum með liðum Stjörnunnar og KFG. Auk þess á hann sjö landsleiki fyrir yngrilandslið Íslands og er virkilega gaman að fá þennan öfluga kappa aftur heim.

Elvar Máni og Hallgrímur Jónasson þjálfari KA þekkjast ansi vel en undir stjórn Hadda varð Elvar Máni og liðsfélagar hans í 4. flokki Íslandsmeistarar sumarið 2020 eftir 3-2 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik. Elvar Máni skoraði einmitt annað mark KA í leiknum en liðið skipuðu þeir Almar Örn Róbertsson, Andri Valur Finnbogason, Askur Nói Barry, Dagbjartur Búi Davíðsson, Dagur Árni Heimisson, Elvar Máni Guðmundsson, Gabriel Lukas Freitas Meira, Helgi Már Þorvaldsson, Ívar Arnbro Þórhallsson, Jóhann Mikael Ingólfsson, Konráð Birnir Gunnarsson, Magnús Dagur Jónatansson, Magnús Máni Sigursteinsson, Máni Dalstein Ingimarsson, Mikael Breki Þórðarson, Sigursteinn Ýmir Birgisson, Þórir Örn Björnsson, Valdimar Logi Sævarsson og Örn Ingvarsson.