Fannar Hafsteinsson, hinn stórefnilegi 16 ára markvörður K.A. fer eftir helgi til fyrstu deildarliðsins Watford og
úrvalsdeildarfélagsins Tottenham til reynslu. Hann mun dvelja í Englandi næstu 12 daga.
Fannar hefur um nokkurt skeið verið undir smásjá enskra liða, en það var í kjölfar heimsóknar Knattspyrnuskóla Arsenal til
Akureyrar fyrr í sumar sem hjólin tóku að snúast.
Fannar mun æfa með báðum liðunum og spila leiki með þeim. Meðal annars mun hann spila leik með Watford gegn Arsenal um í næstu
viku. Vitað er að Arsenal og jafnvel fleiri ensk úrvalsdeildarlið munu fylgjast grannt með honum í þessum leik.
Yngri lið Watford hafa á liðnum árum skipað sér sess meðal þeirra bestu á Englandi. Þykir uppbygging knattspyrnuakademíu
þeirra á margan hátt til fyrirmyndar. Sama má segja um starfið hjá Tottenham.
Fannar hefur æft fótbolta með K.A. frá sex ára aldri og notið reynslu og leiðsagnar Sandor Matus markvarðar mfl. K.A. ásamt handleiðslu
þjálfarateymis yngri flokka félagsins. Fannar er á eldri ári í þriðja flokki KA og hann hefur einnig komið við sögu í 2. flokki
KA og sömuleiðis verið varamarkvörður í meistaraflokki félagsins.