Sjö drengir og ein stúlka úr 3. fl í úrtak

4. fl - Greifamótsmeistarar 2010
4. fl - Greifamótsmeistarar 2010
Næstu helgi fer fram úrtak fyrir stráka fædda 1996 á Norðurlandi. Æfingarnar munu fara fram á laugardegi og sunnudegi í Boganum. Atli Fannar Sverrisson, Gauti Gautason, Gunnar Orri Ólafsson, Egill Már Magnússon, Ívar Sigurbjörnsson, Ívar Örn Árnason og Ragnar G. Sigurgeirsson voru boðaðir frá KA. Þá fer Lára Einarsdóttir á úrtaksæfingar um helgina fyrir sunnan.

Samtals 22 drengir voru boðaðir til æfinga að þessu sinni af Frey Sverrissyni sem hefur verið með U16 um árabil. Til gamans má geta að KA á flesta fulltrúa að þessu sinni. 

Æfingarnar fara fram kl 14.00 á laugardaginn og 12.30 á sunnudaginn.