Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar KA 17. febrúar

Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar KA fyrir árið 2011 verður haldinn í KA-heimilinu föstudaginn 17. febrúar kl. 18.00. Á dagskrá fundarins er afgreiðsla reikninga og önnur mál.

Aðalfundur knattspyrnudeildar fyrir árið 2011 var haldinn 5. desember sl. og í lok þess fundar var honum frestað fram í febrúar, þegar fyrir myndu liggja reikningar deildarinnar fyrir liðið starfsár.

Leyfiskerfi KSÍ kveður á um að fjárhagsgögn, þar með talið ársuppgjör, berist KSÍ í síðasta lagi 20. febrúar. Þess vegna þarf að staðfesta reikningana á framhaldsaðalfundi fyrir þann tíma.