Fasteignir Akureyrarbæjar hafa yfirumsjón með framkvæmdunum, en þær eru fyrst og fremst innan dyra í stúkunni. Öll rými verða endurnýjuð og skipulagi eilítið breytt. Kristján Snorrason, verkefnastjóri hjá Fasteignum Akureyrarbæjar, segist bjartsýnn á að unnt verði að ljúka sem mestu af endurbótunum innan dyra í maí. Fyrsti heimaleikur KA er gegn ÍR þann 20. maí, en of snemmt er að segja til um hvort unnt verði að spila þann leik á Akureyrarvelli. Tvennt ræður því öðru fremur; annars vegar á hvaða stigi umræddar framkvæmdir verða og í annan stað hvort sjálfur völlurinn verði tilbúinn á þeim tíma. Því ræður að sjálfsögðu tíðarfarið í vor. Þegar þetta er ritað eru vissulega töluverð hlýindi í kortunum um næstu helgi, en ef að líkum lætur hefur vetur konungur ekki sagt sitt allra síðasta.
Auk framkvæmda við stúkuna að innan verður aðgengi að stúkunni breytt, í framtíðinni verður gengið inn í hana að vestan. Þar verður einnig byggt lyftuhús fyrir fatlaða og var í dag byrjað að grafa fyrir því húsi.
Það er því allt að gerast með hina fornfrægu stúku Akureyrarvallar, sem eins og kunnugt er er nú heimavöllur Knattspyrnufélags Akureyrar.
ÓÞH