Davíð Örn
Hinn ungi og efnilegi Davíð Örn Atlason er þessa dagana á reynslu hjá KA frá Víkingi. Davíð er ekki öllum KA-mönnum
ókunnugur en hann æfði með KA í yngri flokkum og er sonur Atla Hilmarssonar fyrverandi þjálfara KA í handbolta og núverandi
þjálfara Akureyrar.
Davíð Örn mun æfa með KA í þessari viku og væntanlega taka þátt í æfingaleik gegn KF í
Boganum á skírdag, en hann kom við sögu í æfingaleik gegn BÍ/Bolungarvík síðastliðinn föstudag og stóð
sig vel, hann var sprækur og átti meðal annars skot í slá.
Davíð Örn er fæddur 1994 og er því á yngsta ári í 2. flokki. Hann er samningsbundinn Víkingi Reykjavík, en hjá
því félagi hefur hann æft og spilað með síðan hann flutti suður yfir heiðar, en aldrei hefur hann spilað opinberan leik með
meistaraflokki Víkings. Davíð hefur spilað 4 leiki með U-17 ára landsliði Íslands, en án þess þó að skora mark, en
það vita þeir sem hafa séð til kappans að hann er fjölhæfur leikmaður með gott nef fyrir markinu. Til gamans má geta þess
að Davíð var flokkaður sem C-leikmaður í umtalaðri skýrslu Leifs Garðarssonar, fyrverandi þjálfara Víkings.