KA - getraunir hefja starfsemi næstkomandi föstudag kl. 20 í KA - heimilinu og verður getraunaþjónustan opin alla föstudaga í vetur kl. 20 -
22.
Innanfélagsleikur
§ Leiknar verða 4 umferðir
§ Bestu 3 umferðirnar gilda
§ Hver umferð telur 5 laugardagsseðla
§ Einfaldur seðill - 1 röð
§ Fyrsta umferð: 12., 19. og 26. nóv, 3. og 10. des
§ Einn eða fleiri saman í liði
§ Verðlaun veitt fyrir hverja umferð og heildarkeppnina
Gjaldgengir eru allir sem kaupa laugardagsseðil í gegnum sölukerfi KA annað hvort á getraunakvöldum eða með því að senda tölvupóst á netfangið getraunir@ka-sport.is fyrir kl. 22 á föstudögum.
Hvert lið skilar inn aukaröð í innanfélagsleikinn ásamt sínum laugardagsseðli.
ATH!
Ekki er hægt að greiða fyrir seðlana með reiðufé. Tekið er við greiðslu með greiðslukortum (debet og kredit) á staðnum og tekið er
við kreditkortanúmerum ásamt gildistíma þeirra í tölvupósti.
Vinningshlutfall á enska seðlinum hefur stóraukist vegna samstarfs Íslenskra getrauna við Svenska Spel.
Með því að kaupa getraunaseðil í gegnum sölukerfi KA styrkir þú Knattspyrnudeild félagsins án aukins tilkostnaðar fyrir þig.
Á vef Íslenskrar getspár er hægt að setja inn sinn seðil og glöggva sig þannig á því hvað hann kemur til með að kosta:https://games.lotto.is/CF/games/ENG/index.do
KA – heimilið, föstudagur kl. 20!
Allir velkomnir!
Við erum KA-menn, við tippum!