Það má búast við erfiðum leik gegn Þór, eru menn tilbúnir í leikinn? "Ég held að menn hljóti að vera klárir, þetta er leikur sem allir vilja spila og þar sem þeir slysuðust upp um deild síðasta sumar þá eru litlar sem engar líkur á að við mætum þeim í sumar svo að við þurfum að sýna þeim það núna að við erum betri í fótbolta en þeir."
Hvernig er andinn í hópnum fyrir leik? "Andinn er mjög góður, það er alltaf stuð á okkur. Æfingarnar hafa verið góðar og mikið skap í mönnum, sérstaklega Blömanninum og hann tók það með sér suður til Kef og það skilaði honum frábærri frammistöðu í fyrri hálfleik á mót Kef, en hann var of þreyttur fyrir þann seinni strákgreyjið..;) En eins og ég sagði, þá er andinn góður og hefur jafnvel aldrei verið betri, enda allt saman ungir og ferskir strákar og það sem hefur gerst hjá KA eftir áramót hefur bara haft góð áhrif á liðið."
Sigur í síðasta leik gegn 603, má ekki vænta þess að fá sóknarbolta hjá KA? "Eigum við ekki að reikna með því ? Þó er það fyrst og fremst markmiðið að halda hreinu og skora allavega eitt. Það hefur ekki gengið nógu vel að halda hreinu en það er sama vandamál og var síðasta sumar, en ég hef trú á því að Gulli nái að laga það fyrir sumarið og þetta sumar verði allavega betra sumar en það síðasta sem var mikil vonbrigði."
Hvernig eru nýju mennirnir að koma inní hópinn? "Mjög vel, virkilega ánægður með þá. Maður kynnist þeim betur um helgina vonandi, ég held að þeir komi á æfingu í dag, miðvikudag, og verði eitthvað um helgina líka. Elvar skoraði auðvitað síðast og er búinn að vera duglegur að koma sér í færi, hann skorar nokkur í sumar. Svo er Gústi líka flottur leikmaður, þegar við komum boltanum í lappirnar á honum þá gerir hann oftast vel, hann skorar um helgina. Svo er Hafþór akkúrat maður sem okkur vantaði finnst mér. Það má eiginlega segja það að hann hafi búið til bæði færin sem við skoruðum úr í síðasta leik með góðum sendinugum úr öftustu línu. Svo er talandinn í honum góður og hann stjórnar vörninni vel. Dan er svo einnig mjög góð viðbót, skoraði tvö um daginn er búinn að standa sig vel á æfingum. Ekkert nema gott um þetta að segja."
Leikurin hefst á morgun (fimmtudag) klukkan 21:15