Gulli Jóns í ítarlegu viðtali: Ágætur í old-boys bolta bara

Gunnlaugur var mun ánægðari en þetta þegar hann skrifaði undir þriggja ára samning við KA í dag.
Gunnlaugur var mun ánægðari en þetta þegar hann skrifaði undir þriggja ára samning við KA í dag.
Gunnlaugur Jónsson skrifaði undir þriggja ára samning við KA nú síðdegis og eftir það settist hann niður með síðunni og ræddi málin.

Eins og komið hefur fram hefur er þetta þriðja félagið sem Gunnlaugur þjálfar hjá á þremur árum. Sér hann ekki fram á að staldra lengur við hjá KA? ,,Jú ég held að það sé kominn tími á að fá smá stöðugleika í minn feril, bara fyrir mig sjálfan líka. Þetta er búið að vera fullmikill rússíbani og núna er góður tími til að ná fótfestu, KA er fínn staður upp á það að gera."

Mikið hefur verið rætt og skrafað um þjálfaramál hjá KA í haust eftir að ljóst var að Dínó yrði ekki áfram með liðið. Guðjón Þórðarson fór í viðræður við stjórn en ákvað að halda á Ísafjörð og þá var komið fram í október og KA enn án þjálfara. Mikil óvissa ríkti og hin ýmsu nöfn voru rædd á kaffistofum víðsvegar um bæinn. Í síðustu viku var svo greint frá því að KA ætti í viðræðum við Gunnlaug.

,,Þetta var náttúrulega erfið ákvörðun, ég bý í Reykjavík og ég verð að viðurkenna að þetta var ekkert sérstaklega freistandi fyrst en eftir að hafa skoðað galla og kosti þá var ákvörðunin orðin frekar auðveld í lokin."

KA liðið lenti í 9. sæti í sumar og var um tíma í fallsæti. Háværar raddir heyrðust í stuðningsmönnum um að stokka þyrfti mikið upp innan raða liðsins. Gunnlaugur segist ætla að byggja upp lið sem getur staðið sig vel í framtíðinni. ,,Markmiðið er að gera betur en í sumar. Ég ætla að horfa til lengri tíma, byggja upp lið sem getur gert betri hluti til lengri tíma. Við horfum til lengri tíma en bara næsta ár, næsta ár verður hluti af uppbyggingunni."

,,Ég held að það skemmi ekki að Þór hafi farið upp um deild, það setur hinn bróðurinn upp á tærnar og þó ég þekki klúbbinn ekki það vel þá finn ég að það eru ákveðin tímamót núna, hugur í stjórn og þeim sem koma að þessu og hugsa þetta upp á nýtt og fara í uppbyggingu á innra starfi. Þetta er góð stund til að gera það," sagði Gunnlaugur þegar hann var spurður út í hvort að hann teldi að stökk Þórsara upp um deild hefði áhrif á KA.

,,Ég sá ekki mikið af liðinu í sumar, en 2009 þá spilaði ég við KA og þá voru þeir öflugir. Í sumar náðu þeir sér ekki á strik en mér líst vel á þetta, það er mikið um yngri leikmenn svo er smá aldursbil frá 23-29 ára í hópnum sem hefur kannski vantað í þennan klúbb og fleiri á landsbyggðinni. Engu að síður líst mér vel á liðið. Ég þarf að nota næstu vikur til að kynna mér hvað þessir menn geta og hvort ég þarf að fá einhverja til mín."

,,Það eru alltaf einhver nöfn í boði, en ekkert tímabært að láta í ljós núna. Við gerum okkur grein fyrir því að það þarf að styrkja en það kemur í ljós hvað við getum gert."

,,Ég hugsaði í gærkvöldi hvort að ég ætti að fá Wayne Rooney í sóknina," bætti Gunnlaugur svo við og glotti en eins og kom fram í gær í fjölmiðlum vill hann fara frá Manchester United.

Gunnlaugur er hokinn af reynslu sem leikmaður og á að baki Íslandsmeistaratitla og bikarmeistaratitla ásamt því að hafa leikið um árabil erlendis sem atvinnumaður. ,,Ég veit aldrei hvort ég mun heyra í einhverjum gömlum félögum, það verður að koma í ljós. Ég hef komið víða við á tveimur árum og kynnst mörgum en flestir þessara leikmanna eru fastir á samningum."

Sumarið 2009 lék Gunnlaugur níu leiki með Selfyssingum sem spilandi þjálfari en eftir það sagðist hann hafa lagt skóna á hilluna. Eru þeir fastir þar eða kemur til greina að taka þá niður? ,,Ég efast nú um að ég taki fram skóna, þetta var orðið gott. Ég er núna ágætur í old-boys bolta en ég átti erfitt með að fylgja Val á æfingum í sumar þannig ég er hræddur um að það verði ekki."

Með nýjum þjálfara koma alltaf nýjar áherslur. Dínó hefur mótað liðið síðustu þrjú ár en er nú horfinn á braut, hvaða leikstíl kemur Gunnlaugur til með að innleiða í þá gulklæddu? ,,Ég þarf að meta það og sjá hvernig hóp ég er með, það gafst ágætlega á Selfossi að vera þéttir til baka og verjast, refsa svo andstæðingunum en svo þurti að breyta hjá Val.

,,Það fer mikið eftir mannskap hvaða áherslur verða lagðar fram. Ég hef sýnt það á þessum árum að það er ekki hægt að setja einn ákveðinn leikstíl á mitt lið, þetta kemur í ljós, ég hef ákveðin atriði sem ég mun impra á þegar við byrjum á fullu."


Í haust lét Gunnlaugur af störfum hjá Val en aðilarnir eru enn að vinna í því að ná samkomulagi um starfslok. Mikið gekk á í stjórn Vals í sumar og endaði það með því að þrír stjórnarmenn gengu úr stjórninni. ,,Það er gott að vera búinn að festa sig hjá öðru liði og ég vonast til að þessi mál mín með Val klárist farsællega."

,,Ég hlakka til að hefja störf og sjá fólk á vellinum og í KA-heimilinu. Ég er bara hæstánægður að vera kominn til starfa," sagði Gunnlaugur að lokum.