KA fer í heimsókn til Draupnis á morgun, í 2. umferð bikarsins. Gunnlagur Jónsson þjálfari svaraði
nokkrum spurningum fyrir leikinn. "Við getum valið úr öllum okkar mönnum fyrir utan Stein
Gunnars sem er að klára skólann og Tufa sem er enn meiddur," segir Gulli.
"Dan Howell er loksins kominn til landsins þannig að við erum mestmegnis komnir með okkar hóp til Akureyrar," sagði Gulli aðspurður út í
stöðuna á hópnum
Draupnir spilar í þriðju deild en Gulli tekur þennan leik þó mjög alvarlega "Við tökum þennan leik alvarlega að
sjálfsögðu, við ætlum okkur áfram í bikarnum og við munum því stilla upp okkar sterkasta liði," sagði Gulli.
Það eru einungis fjórir dagar í fyrsta leik á Íslandsmóti og segir Gulli gott að fá þennan leik "Það er gott að
fá þennan leik til að keyra upp liðið fyrir fyrsta leik í deild. Ekkert vanmat er í mönnum enda hafa slakari lið oft strítt þeim
stærri. Við erum í engri stöðu til að vanmeta einn né neinn," sagði Gulli að lokum.