Gunnlaugur og Bjarni Áskels við KA merkið
Í dag mun Gunnlaugur Jónsson skrifa undir samning við KA þess efnis að hann muni taka við þjálfun liðsins. Þar með lýkur
þessari miklu óvissu sem hefur verið í kringum liðið seinasta mánuðinn en miklar vangaveltur hafa verið í gangi um hver yrði arftaki
Dínó og ýmsir menn nefndir til sögunnar.
Gunnlaugur er fæddur árið 1974 og gríðarlega reynslumikill sem leikmaður. Hann hefur verið atvinnumaður með KFC Uerdingen, Motherwell FC, Kongsvinger og
Örebro SK á ferli sínum auk þess að leika með ÍA, KR og Selfoss hér á landi. Með ÍA varð hann Íslandsmeistari árin
1996 og 2001 og svo hefur hann þrisvar orðið bikarmeistari. Tvívegis með Skaganum og svo KR. Hann lagði skóna á hilluna síðasta haust eftir
að hafa spilað 9 leiki með Selfossi þar sem hann var einnig þjálfari.
Kappinn á einnig að baki 12 A-landsleiki og fjölda yngri landsleikja.
Hann hóf þjálfaraferil sinn sem spilandi þjálfari á Selfossi fyrir tímabilið 2009. Hann gerði gott verk þar og undir hans stjórn
unnu Selfyssingar fyrstu deildina og komust upp í úrvalsdeild. Fyrir lokaumferð mótsins það sumar spurðist svo út að Gunnlaugur væri
búinn að semja við Val og olli það miklu fjaðrafoki eins og flestum fótboltaáhugamönnum ætti að vera í fersku minni.
Það mál endaði með því að Gunnlaugur tók við Val haustið 2009 og þar starfaði hann í sumar.
Undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti deildarinnar og í lok september komust Gunnlaugur og Valur að samkomulagi um starfslok.
Við bjóðum Gunnlaug velkominn til KA en myndir af undirskrift og viðtal við hann eru á leiðinni.