Heimasíðan náði á Gulla þjálfara KA fyrir leikinn á morgun gegn KR. Nokkra sterka leikmenn vantar í lið KA, þar á
meðal þremenningana Hafþór Þrastarson, sem er í Portúgal með FH, Andrés Vilhjálmsson, sem er í fríi og Dan Howell, sem er
farinn til Bandaríkjanna.
"Staðan er nokkuð góð, við höfum æft vel í þessari viku og það er virkilega
gaman hvað menn eru að leggja mikið á sig á æfingum. Við erum enn án Magnúsar Blöndal, Tufa og Alla, sem eru á
meiðslalistanum. Við verðum einnig án sterkra leikmanna á morgun, Andrés Vilhjálms fær frí, Dan Howell er kominn til Bandaríkjanna
þar sem hann verður þangað til hann verður búinn að útvega þau gögn sem þarf til þess að hann fái atvinnu- og dvalarleyfi,
hann verður vonandi komin með þau í kringum páskana. Hafþór Þrastarson er svo með FH-liðinu í Portúgal og kemur til landsins
um helgina. Aðrir eru klárir og við fáum Stein Gunnarsson að nýju inn í hópinn og nú reynir á breidd liðsins. Það er
ljóst að við munum lenda í skakkaföllum í sumar og þá fá nýir menn sénsinn og tækifæri til að stimpla sig inn,"
sagði Gulli aðspurður út í stöðuna á hópnum
Hvernig mun Gulli leggja leikinn upp
gegn virkilega sterku KR-liði?
"Við munum áfram leggja áherslu á öflugan varnarleik og allir vinni saman í honum. Við
sýndum gegn Þór í fyrsta skipti í vetur virkilega góðan leik í 90 mínútur og nú er liðsins að halda við þeim
stöðugleika. Við höfum sýnt undanfarið að við höfum ýmis vopn í vopnabúrinu í sóknarleiknum, en ef við ætlum
okkur að eiga möguleika gegn KR, verða menn að vinna saman í varnarleiknum. Ef það tekst hef ég engar áhyggjur þótt KR sé
með eitt besta lið Pepsi deildarinnar. Ég sá KR gegn ÍA um síðustu helgi og þeir voru frábærir einum manni færri í seinni
hálfleik. Ég fagna því að fá svo sterkt lið í heimsókn á þessum tímapunkti og við fáum verðugt
verkefni."
"Við erum að vinna í að finna hafsent og vonandi skýrast þau mál
í byrjun næstu viku," sagði Gulli að lokum um leit að miðverði
KA - KR klukkan 19:15 á föstudag í Boganum