Gunnlaugur: Nýju strákarnir eru að stimpla sig vel inn

Gunnlaugur með Bjarna formanni
Gunnlaugur með Bjarna formanni

Heimasíðan náði í skottið á Gunnlaugi Jónssyni þjálfara KA eftir leikinn á móti Keflavík og spurði hann útí leikinn.

“Ég er sáttur við sóknarleikinn í þessum leik. Við vorum í smá basli fyrsta korterið en unnum okkur svo vel inní leikinn.  Við fáum svo mjög gott færi til að komast yfir fyrir leikhlé. Fyrstu 30-35 mínuturnar í seinni hálfleik erum við frábærir sóknarlega, spilum mjög vel saman og eigum ansi góðar sóknir.  En við erum að gera klaufaleg mistök og við eigum auðveldlega að geta komið í veg fyrir allavega 3 mörk hjá Keflvíkingum.  Það var algjör óþarfi að tapa 4-2 fyrir Keflavík og þær tölur gefa ekki rétta mynd af leiknum. Við erum að spila á meiri breidd í síðustu tveim leikjum sem er jákvætt og nýju strákarnir eru að stimpla sig vel inní liðið okkar.”

Miklar framfarir hafa átt sér stað frá því Gulli tók við, en sér hann enþá framfarir frá leik í leik?

“Það er klárar framfarir í sóknarleiknum milli leikja en við höfum ennþá verk að vinna í varnarleiknum.”

Nýr maður komst á markalistann um helgina, hann Elvar Páll. Tíðkast hefur að menn fái væga flengingu í sturtu eftir fyrsta leik, Gulla var ekki kunnugt um hvort þessi athöfn hafi farið fram en var ánægður með Elvar “þetta var gott mark frá Elvari og Guðmundur var frískur á hægri kantinum enda lagði hann upp bæði mörk okkar”