Hallgrímur Jónasson lætur af störfum sem þjálfari KA

Knattspyrnudeild KA og Hallgrímur Jónasson hafa komist að samkomulagi um starfslok Hallgríms sem þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu.

Hallgrímur gekk upphaflega til liðs við KA sem leikmaður fyrir tímabilið 2018, eftir farsælan atvinnumannaferil erlendis. Hann tók síðar við sem aðstoðarþjálfari liðsins árið 2020 áður en hann var ráðinn aðalþjálfari í september 2022.

Á þeim fjórum árum sem Hallgrímur hefur stýrt liðinu sem aðalþjálfari hefur KA náð góðum árangri. Þar ber hæst bikarmeistaratitilinn árið 2024, þann fyrsta í sögu félagsins, auk þátttöku í Evrópukeppni, sem eru mikilvægir áfangar í sögu félagsins.

Knattspyrnudeild KA þakkar Hallgrími fyrir hans störf í þágu félagsins á undanförnum árum og þann árangur sem náðst hefur undir hans stjórn.

KA þakkar Hallgrími fyrir samstarfið á undanförnum árum og óskar honum og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni.

Knattspyrnudeild KA