Hallgrímur Mar bestur og Mikael Breki efnilegastur

Hallgrímur Mar og Mikael Breki ásamt Hjörvari Maronssyni formanni knattspyrnudeildar KA
Hallgrímur Mar og Mikael Breki ásamt Hjörvari Maronssyni formanni knattspyrnudeildar KA

Lokahóf knattspyrnudeildar KA fór fram um helgina en KA lauk sumrinu með 5-1 heimasigri á ÍBV. Það dugði þó ekki og niðurstaða sumarsins er fall úr Bestudeildinni, þar með lýkur lengstu samfleyttu veru karlaliðs frá Akureyri í efstu deild fótboltans.

Niðurstaða sumarsins er vissulega mikil vonbrigði en þrátt fyrir erfitt sumar á vellinum var stuðningur KA fólks algjörlega til fyrirmyndar frá upphafi og til enda og ómetanlegt að finna fyrir kraftinum í félaginu. Það er klárt mál að við munum læra af sumrinu og komum sterk til baka.

Hallgrímur Mar Steingrímsson var kjörinn besti leikmaður KA í sumar en eins og svo oft áður stóð Grímsi fyrir sínu en hann heldur áfram að skrifa sögu félagsins sem leikja- og markahæsti leikmaður KA frá upphafi.

Mikael Breki Þórðarson var valinn efnilegasti leikmaður KA en Mikki sem er aðeins 19 ára gamall lék stórt hlutverk í liði KA í sumar og skoraði meðal annars tvö mörk. Mikki spilaði sína fyrstu keppnisleiki fyrir meistaraflokk sumarið 2022 og á heldur betur framtíðina fyrir sér.

Hallgrímur Mar náði þeim merka áfanga að leika sinn 400. keppnisleik fyrir KA í sumar en þar eru einungis taldir leikir í deild, bikarkeppni KSÍ, meistarakeppni KSÍ og evrópuleikir. Hallgrímur er leikjahæsti leikmaður í sögu KA en hann hefur nú leikið 404 leiki fyrir félagið, þar af eru 233 í efstu deild sem er einnig félagsmet.

Jakob Snær Árnason lék sinn 100. keppnisleik fyrir KA í sumar en í heildina eru leikirnir nú orðnir 120 talsins. Hann hefur gert í þeim 21 mark en þar af komu sex mörk í sumar.

Hallgrímur Mar var að lokum heiðraður fyrir að vera markahæsti leikmaður KA í sumar en hann gerði alls 14 mörk, þar af 13 í deild og eitt í bikarnum. Grímsi er einnig markahæsti leikmaðurinn í sögu KA en hann hefur gert 139 mörk fyrir félagið, þar af eru 88 í efstu deild sem er einnig félagsmet.