Hallgrímur með boltann
Rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans fór Hallgrímur Mar Steingrímsson á heimaslóðir til Völsungs. Fyrr í glugganum fengu KA-menn
frá Magna Davíð Jón Stefánsson en hann er uppalinn hjá Þór.
Hallgrímur kom við sögu í þrettán leikjum í sumar í deildinni og skoraði í þeim tvö mörk en hann hafði komið til
liðs við KA fyrir síðasta tímabil.
Davíð Jón er enn gjaldgengur í annan flokk og er þegar byrjaður að leika með þeim ásamt því að hafa verið á bekknum
í síðustu leikjum hjá meistaraflokk. Davíð er gríðarlega duglegur bakvörður eða kantmaður og bjóðum við hann velkominn
í KA.