Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027.
Eru þetta ákaflega jákvæðar fréttir enda hefur Grímsi skrifað sögu knattspyrnudeildar KA upp á nýtt en hann er leikjahæsti leikmaður í sögu félagins með 378 leiki í deild, bikar, Evrópu og meistarakeppni KSÍ. Hann er einnig markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 125 mörk. Þá er hann leikjahæsti leikmaður KA í efstu deild með 209 leiki auk þess að vera markahæsti leikmaður KA í efstu deild með 75 mörk. Enn eitt metið setti hann í sumar er hann varð markahæsti leikmaður KA í Evrópu en hann hefur nú gert 4 mörk í 8 Evrópuleikjum, en enginn hefur leikið fleiri Evrópuleiki fyrir KA.
Kappinn er uppalinn hjá Völsung á Húsavík en kom átján ára til liðs við KA fyrir sumarið 2009. Síðan þá hefur hann verið algjör lykilmaður í liði KA og í þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan liðsins er liðið fór úr því að leika í næstefstu deild í að festa sig í sessi Bestudeildarinnar, verða Bikarmeistari og leika í Evrópu.

Grímsi átti frábært tímabil á síðasta ári þar sem hann var valinn besti leikmaður KA en hann var auk þess valinn í úrvalslið Bestudeildarinnar af flestum miðlum landsins en hann gerði 16 mörk á tímabilinu, þar af 13 í Bestudeildinni, eitt í Mjólkurbikarnum og tvö mörk í Sambandsdeild UEFA gegn Silkeborg. Í kjölfarið var hann kjörinn íþróttamaður KA fyrir árið 2025 og nú á dögunum var hann í fyrsta skiptið valinn í A-landslið Íslands sem mætir Mexíkó í vináttuleik í lok mánaðarins.
Grímsi sem er 35 ára gamall hefur sýnt það og sannað á undanförnum árum að hann á nóg eftir og ef eitthvað er þá hefur hann haldið áfram að bæta í með hverju árinu. Hann hefur verið einn besti leikmaður Bestudeildarinnar undanfarin ár og verður virkilega gaman að sjá hann loksins fá tækifærið með landsliðinu í Mexíkó. Það eru gríðarlega jákvæðar fréttir að Grímsi sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og ljóst að hann mun halda áfram að endurskrifa sögu félagsins.