Hann spilaði með KA: Steinar Tenden

Steinar ásamt Ólafi Ásgeirssyni
Steinar ásamt Ólafi Ásgeirssyni
Þá er komið að nýjum lið eins og lofað var á Facebook í gær en hann nefnist "Hann spilaði með KA" og verður reglulega á dagskrá. Fyrstur í þessum lið er markamaskínan Steinar Tenden sem gerði garðinn frægan með KA árið 2003.

Þessi norski framherji vakti mikla athygli þegar KA spilaði í úrvalsdeildinni og átti stóran þátt í að KA hélt sæti sínu í deildinni það árið. Tenden skoraði 9 mörk í deildinni og þar af 8 á fyrra hluta tímabilsins og flest komu þau með grjóthörðu höfði Steinars.

Fullt nafn: Steinar Sande Tenden

Hvenær spilaðir þú með KA? 2003

Hvað spilaðir þú marga leiki fyrir KA? 22 leiki og skoraði 11 mörk

Hver var þjálfari KA í þínum tíma? Þorvaldur Örlygsson

Hvað gerirðu af þér á daginn? Vinn á spítalanum í Førde

Hvar í heiminum býrðu?  Førde Noregi

Ennþá að spila? Já, já

Ertu í sambandi við einhvern úr KA liðinu? Elmar Dan Sigþórsson og Árna Skaftason.

Hvernig líkaði þér Akureyri: Mjög vel, bærinn var fullkominn að stærð fyrir mig og ég eignaðist marga vini þar, þetta var frábær tími og ég sakna Akureyrar mikið

Hefurðu komið aftur eftir að þú fórst frá KA? Nei en ég segi alltaf við sjálfan mig að þetta er árið sem ég fer til Akureyrar og heimsæki vini mína svo þeir gleymi mér ekki og ég þeim. Akureyringar voru mjög vinsamlegir í minn garð og margir þeirra eru ennþá vinir mínir í dag.

Skemmtileg saga frá þínum tíma hjá KA? Ég á margar góðar sögur til að segja frá tíma mínum á Akureyri en ég held að þær væru ekki viðeigandi hérna,  sagði Steinar Tenden að lokum