Harpa Jóhannsdóttir skrifar undir hjá KA

Harpa Jóhannsdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er því fyrsti leikmaðurinn til að skrifa undir hjá nýstofnuðu kvennaliði KA.

Það er heldur betur við hæfi að Harpa sé fyrsti leikmaðurinn til að skrifa undir hjá okkar nýja liði en Harpa sem er uppalin hjá KA er gríðarlega öflugur félagsmaður en auk þess að hafa spilað með liði Þór/KA hefur hún verið ákaflega öflug í þjálfun yngriflokka KA frá unga aldri. Harpa er einnig mikill leiðtogi sem mun án nokkurs vafa drífa lið okkar áfram.

Harpa sem er 28 ára gömul er öflugur markvörður sem lék sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 16 ára gömul sumarið 2014. Hún hefur alla tíð leikið hér fyrir norðan fyrir utan tíma hennar í New Jersey þar sem hún lék með Seton Hall Pirates á skólastyrk í Bandaríkjunum. Harpa lék einnig átta landsleiki fyrir yngrilandslið Íslands.

Harpa lék með Hömrunum sumarið 2018 þar sem hún lék alla leiki liðsins í næstefstu deild og skoraði meðal annars mark. Þá lék hún á láni hjá Völsung á Húsavík sumarið 2025. Undanfarin ár hafa tækifæri Hörpu hjá Þór/KA verið af skornum skammti og verður virkilega gaman að sjá til hennar á vellinum í gula og bláa búningnum.

Hið nýstofnaða lið KA leikur í 2. deild á komandi sumri og erum við ákaflega spennt fyrir því að byggja upp öflugt og metnaðarfullt umhverfi fyrir okkar stelpur. Koma Hörpu heim í KA er lykilskref í þeirri vegferð og erum við afar ánægð að hún sé sú fyrsta til að skrifa undir hjá liðinu. Stelpurnar hafa nú þegar verið að æfa undanfarnar vikur og eru frekari fréttir af leikmannamálum framundan næstu daga.