06.04.2010
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Hamri mánudaginn 12. apríl kl. 20:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi
dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið
ókeypis.
Farið verður í mjög gott námsefni frá FIFA þar sem farið er í praktísku hliðar dómgæslunnar. Þarna er gott
tækifæri fyrir félögin að finna líkleg dómaraefni og senda þau á námskeiðið. Einnig eru allir starfandi dómarar hvattir
til þess að mæta
KSÍ og KDN