Hin Hliðin: Dr. Petar Ivancic

Eins og komið hefur fram er doktorinn næstur í röðinni í Hin Hliðin.


Fullt nafn:Petar Ivancic

Gælunafn:Doktor

Aldur:30 hahaha

Giftur / sambúð:ég er með tvær í takinnu núna

Börn:eitt, strákur 16 ára, kannski meira veit ekki

Hvað eldaðir þú síðast?ég elda aldrei, bara borða

Áhugamál?Fótbolti, handbolti og Póker

Hvaða bók/bækur eru á náttborðinu?Gillz

Starf / Nám?var í prests skóla en var rekinn á loka ári

Með hvaða liðum hefur þú spilað með?Lið í serbíu

Uppáhaldsstaða á vellinum?Hægri Bakvörður

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína?Pepp, svepp og rjómaost

Uppáhalds veitingastaður?Heima að er best

Uppáhaldssjónvarpsefni?Horfi ekki mikið á sjónvarp

Uppáhalds bíómyndin þín?Hangover

Hvaða tónlist hlustar þú á?Hard turbo folk frá serbía

Uppáhaldsútvarpsstöð?95,7

Uppáhaldsdrykkur ?Rauðvín á kvöldin en treo á daginn

Uppáhalds vefsíða fyrir utan KA-sport?fotbolti.net

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Of mikið

Hvernig er best að pirra andstæðinginn?Skalla hann þegar enginn sér

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með?Liverpool

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum?Pabbi minn

Uppáhalds KA leikmaður ? Allir, Etibar Gasanova bestur

Ekki erfiðasti andstæðingur?Haukur Heiðar

Hvaða lið verður Pepsi deildar meistari 2011?Fram, útaf Todda og Almarr og Jobba

Hefur þú leyndan hæfileika ?ég er tantra master

Sætasti sigurinn?Sweatest victory

Þegar doddi makan hélt okkur uppí í deildinni á móti leikni 2007

Mestu vonbrigði?Alltaf að tapa á móti þór

Uppáhaldsknattspyrnumaður?Nemanja Vidic

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar?Eiður smári

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins?Andri fannar hahaha ég grínast

Fallegasti knattspyrnumaðurinn?Haukur Heiðar

Fallegasta knattspyrnukonan?Konan hans Dodda makan, var alltaf hrifinn af henni

Grófasti leikmaður innan félagsins?Andrés Vilhjálms

Besti íþróttafréttamaðurinn?Gummi Ben

Af hverju ertu stoltastur í lífi þínu?Sonur minn

Hver er mesti höstlerinn í liðinu?Maggi blöndal

Hefurðu skorað sjálfsmark? ég skoraði einu sinni tvö í einum leik og við töpuðum 2-0 og allir vildu drepa mig

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?aldrei spilað

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta?að megi væla endalaust í dómaranum

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum)?Michael Jackson

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu?Hlusta á Dean martin segja brandara á ensku!

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum?Toddi Örlygss

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum?Heima hjá mér

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna?Mjög fljótur

Hver er uppáhalds íþróttamaður þinn?Vlade Divac

Fyrir utan knattspyrnu, hvaða öðrum íþróttum fylgist þú með?Körfubolta NBA

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Sokkum

Skemmtilegt augnablik á knattspyrnuferlinum ?Þegar ég fékk gult fyrir að blóta endalaust á hliðarlínuni á móti Fjarðarbyggð og annar línuvörðurinn var Serbi