Fullt nafn:Guðmundur Óli Steingrímsson
Gælunafn: Gummi, Góli, Gummzó, Hr. Dressmann ..
Aldur: tuttuguogeitthvað..
Giftur / sambúð? Nei nei..
Börn: Nei
Hvað eldaðir þú síðast? Kjúklingaleggi vel baðaða í BBQ sósu..
Áhugamál ? Íþróttir, góð tónlist og allskonar kvikmyndir..
Hvaða bók/bækur eru á náttborðinu? MacBook bara..
Starf / Nám ? Dressmann Glerártorgi..
Með hvaða liðum hefur þú spilað með ? Völsung og KA ..
Uppáhaldsstaða á vellinum ? Miðjan..
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepp, piparost og stundum hakk með..
Uppáhalds veitingastaður ? Valhalla í Århuus er mjög skemmtilegur staður..
Uppáhaldssjónvarpsefni? Lost, True Blood, Fringe, Chuck, Boardwalk Empire, Vampire Diaries, 90210, Gossip Girl, Two and a half men, Friends, Pretty little liars svo eitthvað sé nefnt..
Uppáhalds bíómyndin þín ? Crash, The Matrix, Braveheart, Gladiator, The Dark Knight, Inception, 300, Avatar, The Social Network, Lion King ofl..
Hvaða tónlist hlustar þú á? Coldplay, Band of Horses, Ourlives, Eminem ofl..
Uppáhaldsútvarpsstöð ?Ætli það sé ekki FM957 þegar maður hlustar á útvarp, en það er afar sjaldan..
Uppáhaldsdrykkur ?Coca Cola !!!
Uppáhalds vefsíða fyrir utan KA-sport?: fotbolti.net, kvikmyndir.is, imdb.com og facebook auðvitað.. Svo skoðar maður DV, mbl, visir, pressan.is og þetta reglulega, en það helsta ratar oftast á facebook..
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei..
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Ég næ held ég oftast að vera pirrandi alveg óvart..
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? KF klárlega..
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? David Beckham
Uppáhalds KA leikmaður ? Litli bróðir..
Erfiðasti andstæðingur? FH síðasta sumar..
Ekki erfiðasti andstæðingur? Völsungur í Powerade 2008 J
Hvaða lið verður Pepsi deildar meistari 2011 ? KR
Hefur þú leyndan hæfileika ? Þeir eru margir..
Besti samherjinn? Sandor Matus..
Sætasti sigurinn? Það var gaman þegar við unnum Þór í óveðrinu 2008, Addi skoraði með skalla á 91.min..
Mestu vonbrigði? Síðasta sumar eins og það leggur sig, án efa..
Uppáhaldsknattspyrnumaður?C. Ronaldo og Anderson
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári.. Ég er svo ungur..
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Óli bróðir..
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í ensku úrvalsdeildinni? Mér dettur bara enginn í hug..
Fallegasta knattspyrnukonan? Úff, þekki bara Þór/KA liðið en þær eru margar fínar..
Grófasti leikmaður innan félagsins? Jan og Nóri eru lúmskir, oft gaman að fylgjast með þeim á móti hvor öðrum, þá falla oftast tár..
Besti íþróttafréttamaðurinn? Að sjálfssögðu Gummi Ben, en Höddi er mjög góður á góðum degi líka, getur líka verið hræðilegur..
Af hverju ertu stoltastur í lífi þínu? Mömmu minni, sjálfur hef ég ekkert afrekað..
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Jón Heiðar klárlega..
Hefurðu skorað sjálfsmark? Haha nei..
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 2003 líklega..
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Engu.. Nema þessari smámunasemi í dómurum í sambandi við tape á sokkum, hitabuxum og því tengdu og að spjalda fyrir að fara úr að ofan er fáránlegt..
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum)? Eminem, Coldplay, Band of Horses, Justin Timberlake..
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Tapa.. Sérstaklega fyrir Blömanninum..
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Líklega bara Gulli þjálfari..
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Húsavík er góður staður..
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Alltof lengi..
Hver er uppáhalds íþróttamaður þinn? LeBron James, Dwayne Wade, C. Ronaldo
Fyrir utan knattspyrnu, hvaða öðrum íþróttum fylgist þú með? NBA
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Adidas.. AdiZero mest..
Skemmtilegt augnablik á knattspyrnuferlinum ? Æji vá, ég eiginlega man ekki eftir neinu.. Mér finnst samt alltaf jafn fyndið þegar ég hugsa um Blömanninn á Þórsvellinum síðasta sumar, það gekk eitthvað ill hjá stráknum og hann gat ekki einu sinni tekið innkast og það var frekar vandræðalegt fyrir strákgreyjið fyrir framan 500 geðveika mjölnismenn og 1000 aðra.. Mér fannst það ekki fyndið þá en ég get hlegið að því núna, bara því þetta var Maggi..