Það er ekki einungis í undirbúningi á N1-mótinu sem KA-menn standa í ströngu þessa stundina því meistaraflokkurinn er á
leið til Ólafsvíkur að spila mikilvægan leik í fyrstu deildinni í kvöld.
Leikurinn hefst kl. 20 en þessi lið eru á sömu slóðum í deildinni, KA í 9. sæti með 10 stig en öfugt hjá
Ólafsvíkingum, 10. sætið og 9 stig.
Ólafsvíkingarnir rúlluðu annarri deldinni upp síðastliðið sumar undir stjórn Ejubs Purisevic en hann hefur náð að búa til
nokkuð öflugt lið sem er erfitt heim að sækja og því ljóst að verkefnið fyrir strákana hans Gulla er krefjandi í kvöld.