Hvenær spilaðir þú með KA? Síðasta tímabilið mitt með KA var 2005, plús þessar 10 mín sem ég spilaði árið 2007.
Hvar í heiminum býrðu í dag? Osló
Og hvað gerirðu af þér? Starfa hjá rafverktakafyrirtæki og er að spila með liði í 2. deildinni sem heitir Nesodden.
Menntun? Rafvirkjun og lýsingarhönnun.
Sambúð/Börn? Solo
Leikir fyrir KA? 55 og 1 mark
Þú varst á sínum tíma mjög efnilegur en meiðsli settu stórt strik í reikninginn, einhver eftirsjá?
Meiðsli er bara partur af fótboltanum og er bara eitt af því sem þarf að læra ef maður ætlar að vera í þessu á annað borð. Ég get alveg viðurkennt að ég hugsaði mikið um að hætta á tímabili en Toddi pískaði mig áfram og tók það ekki í mál að ég myndi gefast upp. Ég hef kannski verið aðeins óheppnari en aðrir en ég get ekki sagt að það sé nein eftirsjá. Ég er allavega heill í dag og ætla að spila áfram meðan ég hef gaman af.
Þú komst til KA á láni á miðju tímabili 2007 og handleggsbrotnaðir illa eftir u.þ.b 10 mínútur í fyrsta leik og það á móti Þór, það hljóta að hafa verið vonbrigði?
Já, það voru að sjálfsögðu gríðarleg vonbrigði. Held að það hafi verið ca. 7 mín búnar af leiknum þegar þetta gerðist. Ég fann um leið að það væri eitthvað alvarlegt að hendinni, þrjóskaðist engu að síður í nokkrar mínutur þar sem ég hreinlega neitaði að trúa þessu.
Var það rétt ákvörðun á sínum tíma að yfirgefa KA?
Þegar maður hugsar til baka þá held ég að það hafi verið rétt. Vantaði nýja áskorun og vildi breyta til.
Hvert er minnistæðasta tímabilið með KA og af hverju? Ætli það sé ekki tímabilið eftir að við fórum upp úr 1. deildinni. Okkur gekk vel bæði í deildinni og bíkarnum. Við vorum með góða blöndu af ungum og reyndari leikmönnum. Mikið af skemmtilegum karakterum!
Góð saga frá KA-tímanum?
Það eru margar góðar minningar en sögurnar kannski ekki viðeigandi. En þar sem verið er að rifja upp
þegar ég handleggsbrotnaði þá er það mér ofarlega í huga þegar ég hleyp út að hliðarlínu og kalla á Stebba sjúkraþjálfara. Spyr hann hvort hann sé sammála mér um það að ég sé brotinn. Hann er mér sammála eftir að hafa kíkt á hendina og býðst til þess að teipa þetta.
Eftir að hafa hugsað mig tvisvar um (þar sem Stebbi er náttúrlega Evrópumeistari í teipingum og mjög góður sjúkraþjálfari) ákvað ég að það væri ekki ráðlegt og fór í staðinn upp á sjúkrahús og í aðgerð á hendinni. Sé ennþá eftir því að hafa ekki látið hann teipa þetta, bara aumingjaskapur í mér!!
Áfram Steini mágur! áfram KA!