Ívar Logi Jóhannsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA en þessi 18 ára gamli miðjumaður mætir norður frá liði Hattar á Egilsstöðum.
Ívar Logi er spennandi leikmaður sem er með góða tækni og er vel spilandi. Þrátt fyrir ungan aldur lék hann 18 af 22 leikjum meistaraflokks Hattar/Hugins síðasta sumar auk þess að leika með 2. flokksliði KA/Dalvíkur/KF/Hattar/Hamrannar. Ívar Logi er metnaðarfullur leikmaður sem er duglegur að æfa aukalega og hefur sú vinna skilað sér vel í vetur þar sem hann hefur sýnt miklar framfarir.
Við erum ákaflega ánægð með komu hans í KA og bjóðum hann hjartanlega velkominn í gult og blátt.