Jakob Snær Árnason og Knattspyrnudeild KA hafa gert með sér nýjan samning sem gildir út sumarið 2029. Eru þetta ákaflega góðar fréttir enda hefur Jakob verið frábær fyrir KA frá komu sinni í félagið sumarið 2021.
Jakob sem kemur frá Siglufirði er 29 ára gamall og hefur eins og áður segir leikið með KA frá sumrinu 2021. Hann hefur verið lykilmaður í liðinu frá komu sinni og unnið hug og hjörtu stuðningsmanna með baráttu og karakter sínum. Jakob er mikill liðsmaður og er ávallt klár í að gefa sig allan fyrir liðið og tekur að sér öll þau verkefni sem honum er sett fyrir.
Hann varð Bikarmeistari með KA sumarið 2024 og tók þátt í Evrópuævintýrinu 2023. Jakob varð fyrir erfiðum meiðslum rétt fyrir Evrópuverkefnið gegn Silkeborg í fyrra en eins og áður sýnt alvöru karakter í endurkomunni á völlinn. Eins og flestir ættu að vita skoraði Jakob markið sem braut ísinn gegn nágrönnum okkar í Þór á dögunum sem vannst að lokum 3-0 en markið var það fimmta sem hann gerði í sumar.
Jakob lék sinn 100. leik fyrir KA í deild, bikar og evrópu í sumar en alls eru leikirnir orðnir 117 talsins og mörkin orðin 20. Nú er ljóst að leikirnir verða töluvert fleiri og erum við afar spennt fyrir því að halda þessum öfluga kappa innan okkar raða.