KA-menn byrjuðu þó betur og fengu fyrsta færið á 2. mínútu en Hrafn Davíðsson var vel vakandi. Eftir þetta vöknuðu Fjölnismenn og réðu leiknum það sem eftir lifði.
Á 6. mínútu skoruðu þeir fyrsta markið og var þar að verki Viðar Guðjónsson eftir fallega stungusendingu.
Fjölnismenn beittu mikið af stungusendingum og háum boltum í fyrri hálfleik og réðu KA-menn lítið við það. Á 18. mínútu fengu svo Fjölnismenn umdeilda vítaspyrnu þegar leikmaður þeirra lék á Hauk Heiðar og óð inn í teig, þar mætti Hafþór Þrastarson og tæklaði boltann af Fjölnismannum, en virkilega slakur dómari leiksins dæmdi víti. Illugi Gunnarsson steig á punktinn og skoraði framhjá Sandor. 0-2 eftir 20 mínútur.
Eftir þetta bjóst maður við að KA-menn myndu ranka við sér en raunin varð önnur. Kristinn Freyr Steindórsson skoraði 3. mark Fjölnis á 33. mínútu. Eftir að Sandor hafði varið skot hans í slá labbaði Kristinn með boltann inn.
Þannig stóðu leikar í hálfleik og á 64. mínútu kórónaði Pétur Guðmundsson dómari leik sinn og dæmdi víti eftir að Illugi hafði hlaupið með boltann upp umkringdur af 3 KA-mönnum fyrir utan teig, takið eftir, rétt við vítateiginn lét hann sig falla eftir viðskipti við Sigurjón Fannar Sigurðsson og Pétur dæmdi víti og fór svo alveg með það og rak Sigurjón af velli. Rétt að segja að þetta hafi verið fáranlegur dómur og KA-menn alveg brjálaðir.
Illugi steig á punktinn og skoraði öðru sinni framhjá Sandor.
Guðmundur Óli Steingrímsson klóraði svo í bakkann fyrir KA-menn á 91. mínútu me laglegu marki og þar við sat, sanngjarn sigur Fjölnis gegn KA
Viðtöl og vægast sagt umdeild atvik koma inn á síðuna sem fyrst.
Nú er að sýna úr hverju KA er gert, stuðningsmenn tökum höndum saman og styðjum liðið áfram, þrír tapleikir í röð og nú verðum við að hjálpa þeim að komast á rétta braut! Verum jákvæð, það eru nú bara 6 umferðir búnar og á sama tíma í fyrra var KA með 3 stig, núna með 7 og ég er ekki frá því að það sé bæting. STYÐJUM OKKAR MENN Í BLÍÐU OG STRÍÐU! ÞAÐ ER EKKI NÓG AÐ VERA BARA KA- MAÐUR Á HÁTÍÐISDÖGUM ÞEGAR FRÍTT ER AÐ BORÐA!!
ÁFRAM KA HVAR OG HVENÆR SEM ER!!!