Félagar!
Við höldum ótrauð áfram í stuðningi okkar við KA-strákana.
Á morgun, miðvikudaginn 28. júlí munu strákarnir okkar leika gegn ÍR. Leikurinn hefst kl. 19:00 á Akureyrarvelli, heimavelli okkar KA-manna. Að
því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag á pizzastaðnum Bryggjunni við Skipagötu.
Dagskrá hefst kl. 17:00
Andlitsmálning í KA-litunum
Steingrímur Eiðsson, aðstoðarþjálfari KA, fer yfir byrjunarlið, leikskipulag o.fl. sem gaman verður að heyra
Vinir Sagga – Söngæfing
Marsering á völlinn með söng og gleði í fyrirrúmi
Pizzahlaðborð ásamt gosi - 500 krónur á mann - gjöf en ekki gjald
Stemmningstónlist og óvænt uppákoma!
KA-menn!
Mætum allir og klæðumst gulu!
Mætum vel merkt, með fána og trefla, lúðra og veifur og rífum upp stemmninguna í kringum liðið sem okkur öllum þykir vænt um.
Nú sem aldrei fyrr veitir liðinu ekki af stuðningi okkar KA-manna. Sameinumst undir einu flaggi!
Krakkar, bjóðið foreldrum ykkar og forráðamönnum með. Foreldrar, bjóðið frændum ykkar og frænkum með.
Látum fagnaðarerindið berast!
KA-menn! Gulir og glaðir!
Höfum gaman, syngjum saman!
Áfram KA!