KA situr núna í 10 sæti með 7 stig í 10 sæti eftir 7 leiki. 4 tap leikir í röð hjá liðinu sem er ekki alveg nógu gott en enþá er mikið eftir af tímabilinu og það vita allir að KA gefst ekki upp hvorki innan vallar né utan og nú þurfa stuðningsmenn að rífa sig upp af rassgatinu og styðja við bakið á liðinu og vera tólfti maðurinn á vellinum!
Grótta er sýnd veiði en ekki gefin, feykilega vel skipulagðir í sínum varnarleik og maðurinn í brúnni, Sigurður Helgasson, minnir helst á amerískan “rúbbí” þjálfara. En Gróttu menn liggja aftarlega í sínum leikjum og freista þess að beita grimmum skyndisóknum með Magnús Bernard í framlínunni. Þeir hafa verið hættulegir á tímabilinu og náð stigi útúr öllum sínum heimaleikjum.
Ég sá leik hjá þeim gegn Þór í vetur og þeir eru með virkilega skemmtilegt og grimmt lið þar sem hver og einn er til í að fórna sér fyrir þjálfarann.
Ef fólk ætti einhvern tíman að mæta á leik þá er það núna til að hjálpa strákunum að rífa sig upp eftir erfiðann kafla, það er ekki nóg að styðja bara þegar vel gengur og hætta svo bara, tímabilið er langhlaup og því þarf gott úthald og þolinmæði. ALLIR Á VÖLLINN OG ÖSKRIÐ ÁFRAM KA!!!!!!!!!!!!!!
Að neðan er viðtal við Gulla þjálfara fyrir leikinn, biðst velvirðangar á hljóðtruflun en þetta mun ekki eiga sér stað aftur! Að þessu sinni verður engin auglýsing, hún var tekin upp en ekki er unnt að hafa sýna hana af tænilegum ástæðum