Í dag var dregið í milliriðla fyrir U17 ára lið kvenna í Evrópukeppninni. Lenti liðið með Svíþjóð, Englandi og Póllandi í riðli. Sigurvegari riðilsins kemst í úrslitakeppnina sem einungis fjögur lið taka þátt í. Lára spilaði tvo leiki í undankeppninni og skoraði eitt mark í þeim.
Í dag var einnig dregið í undakeppni fyrir tímabilið 2011/12 en Lára mun einnig vera gjaldgeng í liðið á því tímabili. Þar drógust íslensku stelpurnar með Austurríki, Skotlandi og Kasakstan og mun sá riðill fara fram í Austurríki næsta haust.
U19 ára drengjaliðið sem að Stefán æfir með tekur einnig þátt í undankeppni Evrópumótsins næsta haust.
U17 ára drengjaliðið sem Ævar Ingi æfir með tekur þátt í bæði Norðurlandamóti og undankeppni Evrópumótsins næsta sumar og haust.