Knattspyrnudeild KA og veitingahúsið Greifinn endurnýjuðu styrktarsamning sinn í dag og mun KA liðið því áfram leika á Greifavellinum í sumar.
Eru þetta ákaflega jákvæðar fréttir en samstarf KA og Greifans hefur verið afar gott og mikið undanfarin ár en knattspyrnuvöllur KA hefur borið nafn Greifans frá árinu 2018. Auk þess að vera einn stærsti styrktaraðili knattspyrnudeildar KA leggur Greifinn öllu starfi KA lið og má með sanni segja að samstarfið við Greifann sé gríðarlega mikilvægur hluti af rekstri KA.
Nýi samningurinn var handsalaður á Greifavellinum sjálfum en þeir Danijel Djuric og Hallgrímur Jónasson þjálfari KA tóku vel á móti Greifunum þeim Markúsi Gústafssyni, Róberti Má Kristinssyni og Arinbirni Þórarinssyni.
Við viljum minna á að við hvetjum KA-menn eindregið til að beina viðskiptum sínum til bakhjarla félagsins en með því erum við óbeint að styrkja KA. Fótboltasumarið hefst svo á sunnudaginn þegar KA tekur á móti Stjörnunni á Greifavellinum klukkan 17:00. Ársmiðasalan er í fullum gangi í Stubb og eina vitið að vera með okkur á Greifavellinum í allt sumar!